{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreigljbmggshbxhekahmfuztotozhlcd6cafzyylh5i5gr42id2x25q",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mp2psrwnwze2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreick56pqkgba637sf72fxwpeebzdktl64clemqbo6p7rejtdkdzkei"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 688453
  },
  "path": "/433/2026/06/24/real-madrid-aetlar-ad-fara-ad-opna-samtalid",
  "publishedAt": "2026-06-24T19:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Real Madrid hefur sett argentínska miðjumanninn Enzo Fernández efst á óskalista sinn fyrir sumargluggann og hyggst hefja formlegar viðræður við Chelsea um möguleg félagaskipti, samkvæmt AS á Spáni.\n\nFernández, sem er 25 ára gamall og leikur nú með argentínska landsliðinu á heimsmeistaramótinu, hefur verið einn af lykilmönnum Chelsea undanfarin tímabil. Miðjumaðurinn kom til Lundúna frá Benfica í risakaupum árið 2023 og hefur síðan fest sig í sessi sem einn besti leikstjórnandi ensku úrvalsdeildarinnar.",
  "title": "Real Madrid ætlar að fara að opna samtalið"
}