External Publication
Visit Post

Ronaldo skrifaði söguna í góðum sigri Portúgals

DV.is [Unofficial] June 23, 2026
Source
Portúgal tyllti sér á topp K-riðils Heimsmeistaramótsins með sannfærandi 5-0 sigri á Úsbekistan í Houston í kvöld. Það var Cristiano Ronaldo sem stal senunni. Framherjinn skoraði tvö fyrstu mörk Portúgala og svaraði þannig gagnrýni sem hann hafði fengið eftir fyrsta leik liðsins gegn Kongó. Ronaldo kom Portúgal yfir strax á 6. mínútu áður en Nuno Mendes tvöfaldaði forskotið með snjallri aukaspyrnu á 17. mínútu. Ronaldo bætti síðan við sínu öðru marki rétt fyrir leikhlé og tryggði Portúgal þægilega stöðu.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...