{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreihyt46lfedmdgjblzgsqqor3lsbzz6z57vvfmxtx4nmvoajfkb4ji",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3moy7b5vzomt2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreiamqpgytgffmoc6jddsquqh337n64eqc3erw6n3apivfq3yybirqi"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 151865
},
"path": "/433/2026/06/23/ronaldo-skrifadi-soguna-i-godum-sigri-portugals",
"publishedAt": "2026-06-23T19:22:02.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Portúgal tyllti sér á topp K-riðils Heimsmeistaramótsins með sannfærandi 5-0 sigri á Úsbekistan í Houston í kvöld.\n\nÞað var Cristiano Ronaldo sem stal senunni. Framherjinn skoraði tvö fyrstu mörk Portúgala og svaraði þannig gagnrýni sem hann hafði fengið eftir fyrsta leik liðsins gegn Kongó.\n\nRonaldo kom Portúgal yfir strax á 6. mínútu áður en Nuno Mendes tvöfaldaði forskotið með snjallri aukaspyrnu á 17. mínútu. Ronaldo bætti síðan við sínu öðru marki rétt fyrir leikhlé og tryggði Portúgal þægilega stöðu.",
"title": "Ronaldo skrifaði söguna í góðum sigri Portúgals"
}