{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreicrle2sh3bdebkra23zawxa3yrwgsbzijow7mz23a6yv3ac4w5wr4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mov2k54duyf2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibfiagk7eg5fa4vkwya7nvrarbbtmmf7ujazj5gmp3tpagptotslm"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 147810
  },
  "path": "/433/2026/06/22/liverpool-skellir-upp-verdmida-eftir-ad-hafa-hafnad-fyrsta-tilbodi",
  "publishedAt": "2026-06-22T13:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Liverpool hefur hafnað munnlegu tilboði frá Inter Mílanó í miðjumanninn Curtis Jones samkvæmt fréttum frá The Athletic.\n\nÍtalska félagið bauð 25 milljónir evra, sem samsvarar um 21,7 milljónum punda, í enska landsliðsmanninn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Inter reynir að fá Jones til félagsins, en Liverpool hafnaði einnig fyrra tilboði frá Serie A-risunum.\n\nForráðamenn Liverpool meta hinn 25 ára gamla miðjumann á um 35 milljónir punda og eru því ekki tilbúnir að samþykkja tilboð sem eru langt undir því verðmati.",
  "title": "Liverpool skellir upp verðmiða eftir að hafa hafnað fyrsta tilboði"
}