Framlenging og dramatík í Grindavík - Þróttur vann Víking
DV.is [Unofficial]
June 18, 2026
Grindavík/Njarðvík og Þróttur eru komin í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigra í kvöld.
Þróttur vann Víking Reykjavíkurslag fyrr í kvöld, þar sem María Eva Eyjólfsdóttir gerði eina markið seint í leiknum.
Grindavík/Njarðvík tók á móti Stjörnunni og var betri aðilinn í fyrri hálfleik. Það var þó markalaust eftir hann og gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af krafti. Kom Hrefna Jónsdóttir þeim yfir þegar hann var aðeins nokkurra mínútna gamall.
Discussion in the ATmosphere