{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreidsgknujhuzaar3ef3ntchtn7yj3k5imx4d3styleax5ptuaez2tu",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mom6b6vwpmk2"
},
"path": "/433/2026/06/18/framlenging-og-dramatik-i-grindavik-throttur-vann-viking",
"publishedAt": "2026-06-18T22:58:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Grindavík/Njarðvík og Þróttur eru komin í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigra í kvöld.\n\nÞróttur vann Víking Reykjavíkurslag fyrr í kvöld, þar sem María Eva Eyjólfsdóttir gerði eina markið seint í leiknum.\n\nGrindavík/Njarðvík tók á móti Stjörnunni og var betri aðilinn í fyrri hálfleik. Það var þó markalaust eftir hann og gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af krafti. Kom Hrefna Jónsdóttir þeim yfir þegar hann var aðeins nokkurra mínútna gamall.",
"title": "Framlenging og dramatík í Grindavík - Þróttur vann Víking"
}