Styttist í tilboð frá Arsenal
DV.is [Unofficial]
June 18, 2026
Arsenal er sagt vera að undirbúa tilboð í franska kantmanninn Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain. Independent greinir frá.
Barcola skoraði í 3-1 sigri Frakka á Senegal í fyrsta leik liðsins á HM og er talinn einn efnilegasti sóknarmaður Evrópu.
Liverpool hefur einnig verið orðað við leikmanninn, en talið er að áhugi Arsenal sé hvað líklegasti áfangastaðurinn sem stendur.
Independent segir félagið vera að fara yfir nokkur atriði áður en það gerir formlega atlögu að Barcola.
Discussion in the ATmosphere