{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreidai3gzsmdzlnn2jczfm6nsvoxpi6kt22t37qm2362zf6bs7fj42u",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3molqtwpxkqq2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibhlmljfgxash7zq5pncui3fqant2f5257w3c3qofmnzkzkzdqlt4"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 99579
  },
  "path": "/433/2026/06/18/styttist-i-tilbod-fra-arsenal",
  "publishedAt": "2026-06-18T18:03:02.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Arsenal er sagt vera að undirbúa tilboð í franska kantmanninn Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain. Independent greinir frá.\n\nBarcola skoraði í 3-1 sigri Frakka á Senegal í fyrsta leik liðsins á HM og er talinn einn efnilegasti sóknarmaður Evrópu.\n\nLiverpool hefur einnig verið orðað við leikmanninn, en talið er að áhugi Arsenal sé hvað líklegasti áfangastaðurinn sem stendur.\n\nIndependent segir félagið vera að fara yfir nokkur atriði áður en það gerir formlega atlögu að Barcola.",
  "title": "Styttist í tilboð frá Arsenal"
}