External Publication
Visit Post

Arsenal undirbýr tilboð í franska landsliðsmanninn

DV.is [Unofficial] June 18, 2026
Source
Arsenal er að undirbúa tilboð í Bradley Barcola, kantmann Paris Saint-Germain, samkvæmt fréttum frá The Independent. Mikel Arteta og stjórnendur Arsenal eru sagðir vera að skoða nánar hvernig möguleg kaup á Frakkanum gætu farið fram áður en formlegt tilboð verður lagt fram. Félagið hefur sett það í forgang að styrkja vinstri kantinn fyrir næsta tímabil. Sky Sports greindi nýlega frá því að Arsenal væri í leit að nýjum kantmanni auk miðjumanns og hefur Barcola verið meðal þeirra leikmanna sem félagið hefur fylgst náið með.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...