{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreihcwj62ke7tuqfnottaifhfiaxorkaozifeb2uji44ie6k4j3nty4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3moldg6w4viq2"
  },
  "path": "/enski-boltinn/2026/06/18/arsenal-undirbyr-tilbod-i-franska-landslidsmanninn",
  "publishedAt": "2026-06-18T14:37:45.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Arsenal er að undirbúa tilboð í Bradley Barcola, kantmann Paris Saint-Germain, samkvæmt fréttum frá The Independent.\n\nMikel Arteta og stjórnendur Arsenal eru sagðir vera að skoða nánar hvernig möguleg kaup á Frakkanum gætu farið fram áður en formlegt tilboð verður lagt fram. Félagið hefur sett það í forgang að styrkja vinstri kantinn fyrir næsta tímabil.\n\nSky Sports greindi nýlega frá því að Arsenal væri í leit að nýjum kantmanni auk miðjumanns og hefur Barcola verið meðal þeirra leikmanna sem félagið hefur fylgst náið með.",
  "title": "Arsenal undirbýr tilboð í franska landsliðsmanninn"
}