Enskur landsliðsmaður óvænt á blaði Arsenal - Hafa mikinn áhuga
DV.is [Unofficial]
July 3, 2026
Arsenal hefur áhuga á að fá enska landsliðsvarnarmanninn Ezri Konsa frá Aston Villa, samkvæmt frétt The Telegraph.
Konsa á tvö ár eftir af samningi sínum við Villa og félagið er sagt meta hann á um 60 milljónir punda. Sú upphæð er þó talin hærri en Arsenal vill greiða fyrir varnarmanninn.
Konsa hefur verið lykilmaður hjá Aston Villa undanfarin ár og hefur einnig verið í stóru hlutverki með enska landsliðinu á heimsmeistaramótinu. Hann hefur byrjað alla fjóra leiki Englands á mótinu til þessa.
Discussion in the ATmosphere