{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreiawy7hk4v6cxxqzbs4oodz5xwuhkw6bbhil5f4lkiziwp6ueifrpq",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqk56gmzu62"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreihh4vvfqfohcqv2wgrouwilf67ocjhouxx52qatzsuhtbnfaxmkne"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 118907
},
"path": "/433/2026/07/02/enskur-landslidsmadur-ovaent-a-bladi-arsenal-hafa-mikinn-ahuga",
"publishedAt": "2026-07-03T10:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Arsenal hefur áhuga á að fá enska landsliðsvarnarmanninn Ezri Konsa frá Aston Villa, samkvæmt frétt _The Telegraph_.\n\nKonsa á tvö ár eftir af samningi sínum við Villa og félagið er sagt meta hann á um 60 milljónir punda. Sú upphæð er þó talin hærri en Arsenal vill greiða fyrir varnarmanninn.\n\nKonsa hefur verið lykilmaður hjá Aston Villa undanfarin ár og hefur einnig verið í stóru hlutverki með enska landsliðinu á heimsmeistaramótinu. Hann hefur byrjað alla fjóra leiki Englands á mótinu til þessa.",
"title": "Enskur landsliðsmaður óvænt á blaði Arsenal - Hafa mikinn áhuga"
}