City að stela ungstirninu sem Arsenal taldi sig vera að fá
DV.is [Unofficial]
July 3, 2026
Manchester City leggur nú mikla áherslu á að fá hinn 16 ára gamla Jeremy Monga frá Leicester City, samkvæmt The Athletic.
Arsenal hafði einnig sýnt kantmanninum mikinn áhuga og hafði samband við Leicester vegna mögulegra félagaskipta. Engin niðurstaða náðist þó í þeim viðræðum og nú er Manchester City talið komið í betri stöðu í baráttunni um leikmanninn.
Monga er einn efnilegasti leikmaður Leicester og hefur vakið athygli stórliða þrátt fyrir ungan aldur. Hann er hraður og teknískur kantmaður sem getur leikið báðum megin í sókninni.
Discussion in the ATmosphere