{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiavomrcvfycbeq6o2maav2brmsyv76ip4dz3o2u4o5gevpsidvbjq",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqk4mtle3x2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreig3i5o74jz5zph4x3rkptkwsyhafudioxus2wcfje7uv5lbui5cwu"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 108936
  },
  "path": "/433/2026/07/02/city-ad-stela-ungstirninu-sem-arsenal-taldi-sig-vera-ad-fa",
  "publishedAt": "2026-07-03T11:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Manchester City leggur nú mikla áherslu á að fá hinn 16 ára gamla Jeremy Monga frá Leicester City, samkvæmt _The Athletic_.\n\nArsenal hafði einnig sýnt kantmanninum mikinn áhuga og hafði samband við Leicester vegna mögulegra félagaskipta. Engin niðurstaða náðist þó í þeim viðræðum og nú er Manchester City talið komið í betri stöðu í baráttunni um leikmanninn.\n\nMonga er einn efnilegasti leikmaður Leicester og hefur vakið athygli stórliða þrátt fyrir ungan aldur. Hann er hraður og teknískur kantmaður sem getur leikið báðum megin í sókninni.",
  "title": "City að stela ungstirninu sem Arsenal taldi sig vera að fá"
}