Liverpool og United fylgjast með sama manninum
DV.is [Unofficial]
July 3, 2026
Liverpool og Manchester United eru sögð fylgjast með Felix Nmecha hjá Borussia Dortmund.
Þessi 25 ára gamli miðjumaður átti gott tímabil með Dortmund og þá átti hann fínar frammistöður með þýska landsliðinu á HM, en liðið datt út með tapi gegn Paragvæ í 32-liða úrslitum á dögunum.
Dortmund er hins vegar ekki tilbúið að selja hann nema fyrir 86 milljónir punda.
Bæði Liverpool og Manchester United vilja styrkja miðjuna í sumar, en óvíst er hvort félögin séu tilbúin að greiða slíka upphæð fyrir Nmecha.
Discussion in the ATmosphere