Lögreglan notaði táragas til að hemja fólkið
DV.is [Unofficial]
July 2, 2026
Óeirðir brutust út meðal stuðningsmanna Mexíkó fyrir leik liðsins gegn Ekvador í 32-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins þegar þúsundir stuðningsmanna reyndu að komast inn á vinsælt aðdáendasvæði í Monterrey.
Samkvæmt mexíkóskum fjölmiðlum reyndu fjölmargir stuðningsmenn að klifra yfir girðingar og brjóta sér leið í gegnum hlið til að komast inn á svæðið í Parque Fundidora, þar sem risaskjáir höfðu verið settir upp fyrir leikinn. Lögreglan brást við með piparúða og táragasi til að dreifa mannfjöldanum.
Discussion in the ATmosphere