{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreigwqwac36jtz32c4pzcmjptirohopbqnacqbfgpa7ygywpe5shhse",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpogytudy4y2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreidg7mhtituuygdjfrudiog3yhcaulr5mntlorpy3azcnwz7o5zjfa"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 320947
},
"path": "/433/2026/07/01/logreglan-notadi-taragas-til-ad-hemja-folkid",
"publishedAt": "2026-07-02T15:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Óeirðir brutust út meðal stuðningsmanna Mexíkó fyrir leik liðsins gegn Ekvador í 32-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins þegar þúsundir stuðningsmanna reyndu að komast inn á vinsælt aðdáendasvæði í Monterrey.\n\nSamkvæmt mexíkóskum fjölmiðlum reyndu fjölmargir stuðningsmenn að klifra yfir girðingar og brjóta sér leið í gegnum hlið til að komast inn á svæðið í Parque Fundidora, þar sem risaskjáir höfðu verið settir upp fyrir leikinn. Lögreglan brást við með piparúða og táragasi til að dreifa mannfjöldanum.",
"title": "Lögreglan notaði táragas til að hemja fólkið"
}