{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiczo4bks2yi3j6vuiutsa6ey6jijbxqk4jbnqlj3u7h6u5mphnvvq",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mplwhmpb3sp2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibppfst2y734n2foqcgycqwhgqtdgwcdinex6ve7f5lbqvz6xs2nu"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 290550
  },
  "path": "/433/2026/07/01/nyr-leikmadur-liverpool-segir-draum-vera-ad-raetast",
  "publishedAt": "2026-07-01T15:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Liverpool hefur formlega staðfest komu miðvarðarins Jeremy Jacquet frá franska félaginu Rennes.\n\nÞessi franski U21-landsliðsmaður skrifar undir fimm ára samning, en kaupverðið er sagt vera 55 milljónir punda auk allt að fimm milljóna í árangurstengdum greiðslum.\n\nJacquet meiddist á öxl skömmu eftir að samkomulag náðist við hann í janúar en hefur lokið endurhæfingu og verður klár þegar undirbúningstímabil Liverpool hefst.\n\n„Þetta er draumur sem rætist. Þetta er risafélag og ég er mjög spenntur fyrir því að byrja,“ sagði Jacquet eftir undirskrift.",
  "title": "Nýr leikmaður Liverpool segir draum vera að rætast"
}