{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreiethpqrfruyykut7zq3ozvsyize5dp57ew6etv4fzcxilv6p2ebce",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mplj23lgkcq2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreiemaf2gmvcewkiccwl4l6vaf5n77rawkfp7ak2anxze5eaqaqln6e"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 125545
},
"path": "/433/2026/07/01/stigur-til-hlidar-eftir-tapid-i-nott",
"publishedAt": "2026-07-01T10:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Sebastian Beccacece hefur látið af störfum sem landsliðsþjálfari Ekvador eftir að liðið féll úr leik gegn Mexíkó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.\n\nSamningur argentínska þjálfarans rann út í kjölfar tapsins og hann hefur sjálfur ákveðið að gefa ekki kost á sér í starfið áfram.\n\nBeccacece tók við landsliði Ekvador 2024 og fór vel af stað. Hann sætti hins vegar vaxandi gagnrýni fyrir ákvarðanir sínar á yfirstandandi HM.\n\nÚrslitin gegn Mexíkó urðu að lokum til þess að hann hefur ákveðið að stíga til hliðar.",
"title": "Stígur til hliðar eftir tapið í nótt"
}