Lewandowski endar í Bandaríkjunum
DV.is [Unofficial]
June 29, 2026
Robert Lewandowski er nálægt því að ganga til liðs við bandaríska félagið Chicago Fire frá Barcelona.
Þessi 37 ára gamli framherji kemur á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Börsunga er að renna út og skrifar undir tveggja ára samning vestanhafs.
Lewandowski er enn í fullu fjöri þrátt fyrir aldurinn. Hann skoraði 120 mörk í 193 leikjum á tíma sinum með Barcelona.
Það var einnig áhugi á Pólverjanum frá Ítalíu og Sádi-Arabíu en allt útlit er fyrir að hann haldi til Bandaríkjanna.
Discussion in the ATmosphere