{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreid5tm5utbu5or72xwusequlbg7kkbgrakbfwazz553tvrnnnsniru",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpghviziu222"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreiahnsbg4son37lvnmxboym6kqeboz2exu4lywtpx72hshunskcxri"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 167085
  },
  "path": "/433/2026/06/29/lewandowski-endar-i-bandarikjunum",
  "publishedAt": "2026-06-29T12:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Robert Lewandowski er nálægt því að ganga til liðs við bandaríska félagið Chicago Fire frá Barcelona.\n\nÞessi 37 ára gamli framherji kemur á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Börsunga er að renna út og skrifar undir tveggja ára samning vestanhafs.\n\nLewandowski er enn í fullu fjöri þrátt fyrir aldurinn. Hann skoraði 120 mörk í 193 leikjum á tíma sinum með Barcelona.\n\nÞað var einnig áhugi á Pólverjanum frá Ítalíu og Sádi-Arabíu en allt útlit er fyrir að hann haldi til Bandaríkjanna.",
  "title": "Lewandowski endar í Bandaríkjunum"
}