External Publication
Visit Post

Arsenal að tryggja sér eitt mesta efni enska boltans á væna summu

DV.is [Unofficial] June 25, 2026
Source
Arsenal hefur hafið formlegar viðræður við Leicester City um kaup á hinum 16 ára gamla vængmanni Jeremy Monga, samkvæmt frétt The Athletic. Félögin eru í beinum samskiptum en enn hefur ekki náðst samkomulag um félagaskiptin. Ýmsir miðlar greina þó frá því að Arsenal sé tilbúið að greiða allt að 10 milljónir punda fyrir ungstirnið. Monga er talinn einn efnilegasti leikmaður enskrar knattspyrnu í sínum aldursflokki og hefur vakið mikla athygli með frammistöðu sinni hjá Leicester.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...