{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreieubzeon644y6lcy2pmuzeix2cglwiaccni5o5we737nzx6dbqhga",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mp4fl7eskz52"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreig3i5o74jz5zph4x3rkptkwsyhafudioxus2wcfje7uv5lbui5cwu"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 108936
  },
  "path": "/433/2026/06/24/arsenal-ad-tryggja-ser-eitt-mesta-efni-enska-boltans-a-vaena-summu",
  "publishedAt": "2026-06-25T11:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Arsenal hefur hafið formlegar viðræður við Leicester City um kaup á hinum 16 ára gamla vængmanni Jeremy Monga, samkvæmt frétt The Athletic.\n\nFélögin eru í beinum samskiptum en enn hefur ekki náðst samkomulag um félagaskiptin. Ýmsir miðlar greina þó frá því að Arsenal sé tilbúið að greiða allt að 10 milljónir punda fyrir ungstirnið.\n\nMonga er talinn einn efnilegasti leikmaður enskrar knattspyrnu í sínum aldursflokki og hefur vakið mikla athygli með frammistöðu sinni hjá Leicester.",
  "title": "Arsenal að tryggja sér eitt mesta efni enska boltans á væna summu"
}