Barátta United og Tottenham harðnar
DV.is [Unofficial]
June 23, 2026
Mateus Fernandes er orðinn eitt heitasta nafnið á félagaskiptamarkaðnum en bæði Manchester United og Tottenham vinna nú hörðum höndum að því að tryggja sér undirskrift miðjumannsins.
Samkvæmt fréttum frá félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano eru Manchester United í virkum viðræðum bæði við leikmanninn sjálfan og West Ham United FC um möguleg félagaskipti.
Tottenham hefur þó ekki gefist upp og er einnig sagt leggja mikla áherslu á að ná samkomulagi við Fernandes. Enn hefur ekkert verið ákveðið og samkeppnin um leikmanninn er hörð.
Discussion in the ATmosphere