United útilokar að selja hann - Barcelona og Atletico hafa áhuga
DV.is [Unofficial]
June 22, 2026
Manchester United hefur engan áhuga á að selja framherjann Benjamin Sesko í sumar þrátt fyrir áhuga frá tveimur af stærstu félögum Spánar.
Samkvæmt TeamTalk hafa bæði Barcelona og Atlético Madrid fylgst grannt með stöðu hins 23 ára gamla slóvenska landsliðsmanns og skoðað möguleikann á að fá hann til liðs við sig. Forráðamenn Manchester United eru hins vegar sagðir hafa útilokað sölu á leikmanninum á þessu félagaskiptatímabili.
Discussion in the ATmosphere