{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreihu5b6vx2hacrmbqnj4xshymdbc7pf7r6hf67ej5jegmk7nfmln5e",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3movonwxbbja2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreigh2yphd5iglflsekymwr7fbuyqzq73rjrf2rywuhds5c5twhhrny"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 139533
  },
  "path": "/433/2026/06/22/united-utilokar-ad-selja-hann-barcelona-og-atletico-hafa-ahuga",
  "publishedAt": "2026-06-22T19:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Manchester United hefur engan áhuga á að selja framherjann Benjamin Sesko í sumar þrátt fyrir áhuga frá tveimur af stærstu félögum Spánar.\n\nSamkvæmt TeamTalk hafa bæði Barcelona og Atlético Madrid fylgst grannt með stöðu hins 23 ára gamla slóvenska landsliðsmanns og skoðað möguleikann á að fá hann til liðs við sig. Forráðamenn Manchester United eru hins vegar sagðir hafa útilokað sölu á leikmanninum á þessu félagaskiptatímabili.",
  "title": "United útilokar að selja hann - Barcelona og Atletico hafa áhuga"
}