Söðlar hann um innan London?
DV.is [Unofficial]
June 19, 2026
Chelsea ku hafa áhuga á sænska miðjumanninum Lucas Bergvall hjá Tottenham.
Bergvall er með sænska landsliðinu á HM sem stendur og fylgjast forráðamenn Chelsea grannt með honum þar.
Hinn tvítugi Bergvall hefur verið hjá Tottenham í tvö ár en hafa bæði tímabil hans þar verið strembin hvað liðið varðar og Tottenham endað í 17. sæti.
Er kappinn sagður opinn fyrir því að horfa í kringum sig, en engar viðræður hafa þó átt sér stað um framtíð leikmannsins.
Discussion in the ATmosphere