External Publication
Visit Post

Frammistaðan á HM setti Chelsea og Liverpool upp á tærnar

DV.is [Unofficial] June 19, 2026
Source
Áhuginn á Svíanum Yasin Ayari hjá Brighton hefur aukist enn frekar eftir góða byrjun hans á HM. Samkvæmt Teamtalk hafa bæði Liverpool og Chelsea sýnt þessum 22 ára gamla miðjumanni áhuga og fylgst náið með honum undanfarna mánuði. Ayari vakti sérstaka athygli þegar hann skoraði tvö mörk í 5-1 sigri Svía á Túnis í fyrsta leik liðsins á HM og ekki var það til að minnka áhugann. Brighton vill þó halda í leikmanninn og hefur samkvæmt sömu fréttum hafið viðræður um nýjan samning. Núverandi samningur hans gildir aðeins til næsta sumars.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...