{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreib4azmdn4d4mis2pcxoyudkrzrlyf3xzqgacwcpprrnlgsl6egeaq",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3momz547ssvq2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreigatqztauateb5swkjqu7bdrdcp5v6mzfkh4naoaxfl7l5ffllyhu"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 124309
},
"path": "/433/2026/06/18/frammistadan-a-hm-setti-chelsea-og-liverpool-upp-a-taernar",
"publishedAt": "2026-06-19T09:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Áhuginn á Svíanum Yasin Ayari hjá Brighton hefur aukist enn frekar eftir góða byrjun hans á HM.\n\nSamkvæmt Teamtalk hafa bæði Liverpool og Chelsea sýnt þessum 22 ára gamla miðjumanni áhuga og fylgst náið með honum undanfarna mánuði.\n\nAyari vakti sérstaka athygli þegar hann skoraði tvö mörk í 5-1 sigri Svía á Túnis í fyrsta leik liðsins á HM og ekki var það til að minnka áhugann.\n\nBrighton vill þó halda í leikmanninn og hefur samkvæmt sömu fréttum hafið viðræður um nýjan samning. Núverandi samningur hans gildir aðeins til næsta sumars.",
"title": "Frammistaðan á HM setti Chelsea og Liverpool upp á tærnar"
}