Liverpool staðfestir komu Victor Munoz
DV.is [Unofficial]
June 18, 2026
Liverpool hefur gengið frá kaupum á spænska kantmanninum Victor Munoz frá Osasuna fyrir 34,5 milljónir punda.
Munoz, sem er með spænska landsliðinu á HM, fór í læknisskoðun hjá Liverpool í Bandaríkjunum og skrifar undir sex ára samning við félagið.
Newcastle hafði einnig mikinn áhuga á leikmanninum og var talið vera komið langt með að landa honum áður en Liverpool blandaði sér í málið.
Munoz er 22 ára gamall og getur leikið á báðum köntum sem og í fremstu víglínu.
Discussion in the ATmosphere