{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreibli3o2q5glo3dibzcsetxms5ntlhqqgufoogihpw7hblyxbmwaei",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3molk4jv77fx2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreif65yvrw2idguysmtruu4mmc2cfeavvw2t7vjerbcjhepsoxlhhme"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 140288
  },
  "path": "/433/2026/06/18/liverpool-stadfestir-komu-victor-munoz",
  "publishedAt": "2026-06-18T18:19:30.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Liverpool hefur gengið frá kaupum á spænska kantmanninum Victor Munoz frá Osasuna fyrir 34,5 milljónir punda.\n\nMunoz, sem er með spænska landsliðinu á HM, fór í læknisskoðun hjá Liverpool í Bandaríkjunum og skrifar undir sex ára samning við félagið.\n\nNewcastle hafði einnig mikinn áhuga á leikmanninum og var talið vera komið langt með að landa honum áður en Liverpool blandaði sér í málið.\n\nMunoz er 22 ára gamall og getur leikið á báðum köntum sem og í fremstu víglínu.",
  "title": "Liverpool staðfestir komu Victor Munoz"
}