External Publication
Visit Post

Ólga að verða til í herbúðum Portúgals - Systir Ronaldo tekur undir gagnrýni á Bruno

DV.is [Unofficial] June 18, 2026
Source
Portúgalska landsliðið hefur verið undir mikilli gagnrýni eftir vonbrigðajafntefli gegn Kongó í fyrsta leik sínum á Heimsmeistaramótinu og nú hefur systir Cristiano Ronaldo kveikt í orðrómi um mögulegt ósætti innan hópsins. Portúgal gerði aðeins 1-1 jafntefli við Kongó í Houston þrátt fyrir að vera talið eitt af sigurstranglegri liðunum á mótinu. João Neves kom liðinu yfir snemma leiks en Yoan Wissa jafnaði metin rétt fyrir hálfleik.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...