{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreigx7qfdw46vwaydhvcevjrrbgoeqeefqymdmmcaf2k5fvpsq2q2ui",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqqtjtsgzq2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreichuudxoje66mhpiqbqlclvydg2rz5pthpvgh3crlj7urluymarka"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 120052
  },
  "path": "/433/2026/07/02/arsenal-gefst-ekki-upp-a-bruno-og-aetla-ad-reyna-afram",
  "publishedAt": "2026-07-03T13:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Arsenal hefur ekki gefið upp vonina um að fá Bruno Guimaraes frá Newcastle í sumar.\n\nSamkvæmt enskum miðlum hefur Arsenal enn ekki lagt fram formlegt tilboð í brasilíska miðjumanninn, en félagið fékk fyrirspurn í gegnum milliliði hafnað í síðasta mánuði.\n\nNewcastle hefur þegar selt Anthony Gordon til Barcelona fyrir 70 milljónir punda og Sandro Tonali er á leið til Tottenham í samningi sem gæti orðið 100 milljónir punda virði. Félagið vill þó ekki missa Guimaraes líka og segir fyrirliðann ekki til sölu.",
  "title": "Arsenal gefst ekki upp á Bruno og ætla að reyna áfram"
}