{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreid4kog2xz2j6sdd32ay4onb6ggwltri3ytd3xtctmuwgq4y5qbt3m",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpqqt2yeqek2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreifsfufn23py4qqvf7xlakqh67hv43wrpzl4mgoufg62byx43yx2aa"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 494707
  },
  "path": "/433/2026/07/02/united-skodar-fjora-kosti-eftir-hoggid-fra-fernandes",
  "publishedAt": "2026-07-03T14:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Manchester United hefur sett saman fjögurra manna óskalista fyrir miðsvæðið eftir að félagið missti af Mateus Fernandes til Tottenham.\n\nFernandes var lengi ofarlega á lista United og Jorge Mendes hafði unnið að mögulegum félagaskiptum hans til Old Trafford. United vildi hins vegar ekki greiða 85 milljónir punda sem West Ham fór fram á og Tottenham hefur nú tryggt sér portúgalska miðjumanninn.\n\nUnited hefur þegar náð samkomulagi um kaup á Ederson frá Atalanta fyrir 35 milljónir punda, en félagið vill bæta við öðrum miðjumanni í hóp Michael Carrick.",
  "title": "United skoðar fjóra kosti eftir höggið frá Fernandes"
}