External Publication
Visit Post

Nagelsmann kveður og viðræður við Klopp hefjast

DV.is [Unofficial] July 3, 2026
Source
Þýska knattspyrnusambandið ætlar að hefja viðræður við Jurgen Klopp um að taka við þýska landsliðinu eftir að Julian Nagelsmann sagði starfi sínu lausu í morgun. Þýskaland féll úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum og er Nagelsmann nú hættur. Nú munu viðræður hefjast við Klopp, en þýska sambandið segir hann opinn fyrir að taka við starfinu. Klopp er í dag í starfi sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull samsteypunni, en hann tók við þeirri stöðu eftir að hann hætti með Liverpool.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...