{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreihfw3woivdyslnkduxhl5qxtmxv34ennbrvvsyw5ti5xvlhwacbze",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpp35fexell2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreidea5gafkgxey4cawki3gl2pawzb6plzlkkujk6otoqqp7xyz7tza"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 956889
},
"path": "/433/2026/07/02/langbesta-lid-landsins-fann-leid-til-ad-vinna",
"publishedAt": "2026-07-02T21:11:57.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Víkingur jók forskot sitt á toppi Bestu deildar karla enn frekar með sigri á KA í kvöld.\n\nVíkingur byrjaði leikinn af krafti og Aron Elís Þrándarson kom þeim yfir með skallamarki snemma leiks.\n\nHinn ólseigi Hallgrímur Mar Steingrímsson svaraði hins vegar með tveimur flottum mörkum og gestirnir frá Akureyri leiddu 1-2 í hálfleik.\n\nÚtlitið var gott fyrir KA lengi vel en Aron Elís var aftur á ferðinni með mark á 82. mínútu og í uppbótartíma fékk Víkingur vítaspyrnu. Gylfi Þór Sigurðsson fór á punktinn og skoraði af öryggi.",
"title": "Langbesta lið landsins fann leið til að vinna"
}