External Publication
Visit Post

Fimm leikmenn Þjóðverja neituðu að taka vítaspyrnu - Einn fær sérstaklega á baukinn

DV.is [Unofficial] July 2, 2026
Source
Jonathan Tah tók fyrstu vítaspyrnu ferils síns þegar Þýskaland féll úr leik gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Kom það til þar sem Þjóðverjar áttu í vandræðum með að finna mann til að taka fyrstu spyrnu bráðabanans. Þýski miðillinn Bild greinir frá þessu. Þar er fullyrt að Leon Goretzka, Nathaniel Brown, Malick Thiaw, Waldemar Anton og Manuel Neuer hafi allir verið tvístígandi eða hreinlega hafnað því að taka vítaspyrnu.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...