{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreidd7lktrbslgo7d36eaa666dn4viklsiu2t6qeqfkrlowwtpswwx4",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpoacq2fw6v2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreidz2if37luriyapzeuie3r6r3klfagvhvsbuf63zrn7g6sdilcacu"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 104921
},
"path": "/433/2026/07/02/mikil-bjartsyni-i-mexiko-fjolmidlar-tala-um-veikleika-englands-og-arangur-a",
"publishedAt": "2026-07-02T12:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Mikil bjartsýni ríkir í mexíkóskum fjölmiðlum fyrir viðureign Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á sunnudag. Leikurinn fer fram á hinum sögufræga Azteca-leikvangi í Mexíkóborg, sem stendur í um 2.200 metra hæð yfir sjávarmáli.\n\nEnglendingar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitunum með erfiðum 2:1-sigri gegn DR Kongó þar sem þeir lentu snemma undir og þurftu tvö síðbúin mörk frá Harry Kane til að snúa leiknum sér í hag. Frammistaðan hefur vakið athygli í Mexíkó, þar sem talið er að veikleikar enska liðsins geti reynst heimamönnum dýrmætir.",
"title": "Mikil bjartsýni í Mexíkó - Fjölmiðlar tala um veikleika Englands og árangur á heimavelli"
}