{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreice7yttrp54ip4xlri2dlmlcipmmd6lrjyxhwtfotyu4i573orm3a",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpmrcebhwos2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreicq22mvyf6g4cb67ofxbp472lf6sdmv5mtzw7d2sh46yk3ckvl354"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 137578
},
"path": "/433/2026/07/01/rashford-tharf-ad-fara-svo-united-geti-keypt-manninn-sem-their-vilja",
"publishedAt": "2026-07-01T22:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Crysencio Summerville er orðinn einn helsti kostur Manchester United til að styrkja vinstri kant sóknarinnar fyrir komandi tímabil.\n\nSamkvæmt heimildum er staða félagsins á leikmannamarkaðnum þó enn í mótun og næstu skref ráðast að miklu leyti af framtíð Marcus Rashford á Old Trafford.\n\nUnited hefur verið orðað við nokkra kantmenn í sumar en Summerville virðist nú vera ofarlega á óskalistanum. Hollendingurinn hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri með frammistöðu sinni á Englandi og er talinn henta leikstíl félagsins vel.",
"title": "Rashford þarf að fara svo United geti keypt manninn sem þeir vilja"
}