{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreiemhnkperry4o3ac6z3opaeaiyxxdc4iyeyobi7erafzhdtxyrll4",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpm55uygz2v2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreihrlpxwdmg7p4bwbtb5q2f367c7nbxt43ctxhok455yavmnumrduq"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 98941
},
"path": "/433/2026/07/01/pabbi-haaland-bardist-vid-tarin-i-bandarikjunum",
"publishedAt": "2026-07-01T17:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Erling Haaland tryggði Noregi sögulegan sigur þegar hann skoraði sigurmarkið í 1:0 sigri á Fílabeinsströndinni í 32-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum.\n\nFramherji Manchester City skoraði á 86. mínútu eftir frábæran undirbúning Patrick Berg, sem komst inn fyrir vörn Fílabeinsstrandarinnar og lagði boltann fyrir Haaland. Hann átti þá auðvelt með að renna boltanum í netið af stuttu færi og tryggja Norðmönnum sæti í 16-liða úrslitum.\n\nÞetta er í fyrsta sinn sem Noregur vinnur útsláttarleik á stórmóti og því sögulegur áfangi fyrir þjóðina.",
"title": "Pabbi Haaland barðist við tárin í Bandaríkjunum"
}