{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreid5zpesyq7gicond26xzgllayc4h4nsqculxj62gebxey6n62blsm",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mplwh5vwdkm2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreihb2lpiczhwnft7je2k4wiajun4pe22ykzzidiligiqiuvaq5nhgu"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 114924
},
"path": "/433/2026/07/01/thess-vegna-var-mark-thjodverja-daemt-af",
"publishedAt": "2026-07-01T15:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "FIFA segir að lið og þjálfarar hafi verið upplýst fyrir yfirstandandi heimsmeistaramót um að dómarar myndu refsa þeim fyrir nákvæmlega þá tegund brota sem varð til þess að mark Þýskalands gegn Paragvæ var dæmt af.\n\nJonathan Tah taldi sig hafa komið Þjóðverjum í 2-1 í framlengingu en eftir skoðun í VAR var markið dæmt af þar sem Waldemar Anton var talinn hafa brotið á markverðinum Orlando Gill.\n\nMörgum fannst þetta ansi harður dómur, enda brot Anton ekki mjög gróft. Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands, var öskuillur vegna dómsins.",
"title": "Þess vegna var mark Þjóðverja dæmt af"
}