{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreifg3h5jb4g57f7lntvzvkf6eqlrsbttavt4vvmvcbof7l5kledfvy",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mplpqterhxb2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreicw3fs4jpaoagz4cpzdwwhn55vjsbelbz4gwidsbua7wdrdrydlq4"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 95203
  },
  "path": "/433/2026/07/01/klopp-sagdur-liklegastur-til-ad-taka-vid",
  "publishedAt": "2026-07-01T12:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Jurgen Klopp er sagður opinn fyrir því að taka við þýska landsliðinu, sem olli miklum vonbrigðum á HM.\n\nSamkvæmt Telegraph er Klopp líklegastur til að taka við af Julian Nagelsmann, en Þjóðverjar féllu óvænt úr leik gegn Paragvæ í 32-liða úrslitum.\n\nKlopp starfar nú sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull félögunum og hefur ekki viljað tjá sig mikið um orðrómana um að hann gæti tekið við landsliðinu.",
  "title": "Klopp sagður líklegastur til að taka við"
}