{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreibqqqmtgxcbj2s3ezqvbd6upw6ahtb5l5nfjbmbdpf75ggqfxq3ru",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpl3lkcr5cj2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreibhlmljfgxash7zq5pncui3fqant2f5257w3c3qofmnzkzkzdqlt4"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 99579
},
"path": "/433/2026/06/30/arsenal-baetir-i-ahuga-sinn",
"publishedAt": "2026-07-01T07:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Arsenal hefur fært áhuga sinn á Bradley Barcola, kantmanni Paris Saint-Germain, upp á næsta stig.\n\nBBC segir að Arsenal hafi sent fulltrúa til að fylgjast með hinum 23 ára gamla Barcola með franska landsliðinu á HM.\n\nMorgan Rogers hjá Aston Villa er þó enn efstur á blaði Arsenal en verðmiðinn á honum gæti orðið til þess að Englandsmeistararnir leiti frekar til Parísar.\n\nHugsanleg kaup PSG á kantmanninum Yan Diomande gætu þá orðið til þess að félagið sé til í að selja Barcola.\n\nLiverpool fylgist einnig með gangi mála hjá Barcola.",
"title": "Arsenal bætir í áhuga sinn"
}