{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreihhgi2wonuzkxdam2q634yaoxfrdhsimt54upnlld3e37st5nw7eu",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpjfvpapfrp2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreicf35creb3oitz4iolclgm6zjkay2kpnexfzhqdqdihwsd5ko65am"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 139903
  },
  "path": "/433/2026/06/30/reiddist-frettakonu-sem-vildi-fa-svor-um-hormungar-thyskalands",
  "publishedAt": "2026-06-30T14:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands, var sýnilega svekktur eftir óvænta brottför liðsins úr Heimsmeistaramótinu og missti að lokum þolinmæðina í sjónvarpsviðtali.\n\nÞjóðverjar féllu úr leik í 32-liða úrslitum eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli eftir framlengingu, en umdeilt atvik í framlengingunni vakti mikla athygli þegar sigurmark Jonathan Tah var dæmt af eftir VAR-skoðun.\n\nNagelsmann var afar ósáttur við dómgæsluna og kallaði ákvörðunina „algjört hneyksli“.",
  "title": "Reiddist fréttakonu sem vildi fá svör um hörmungar Þýskalands"
}