{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreidqchd4fzfa6wuqd2ot264bc2ojhhk7koi4wczmza5ggadad5azpa",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpj7643j7ef2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreibhlmljfgxash7zq5pncui3fqant2f5257w3c3qofmnzkzkzdqlt4"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 99579
  },
  "path": "/433/2026/06/30/setja-skuggalegan-verdmida-a-manninn-sem-liverpool-og-arsenal-vilja",
  "publishedAt": "2026-06-30T13:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Paris Saint-Germain hefur gert það ljóst að Bradley Barcola sé ekki til sölu þrátt fyrir mikinn áhuga frá bæði Arsenal og Liverpool.\n\nSamkvæmt The Athletic hefur franski meistarinn enga þörf á að selja hinn 23 ára gamla kantmann, jafnvel þótt félagið sé komið langt í viðræðum um kaup á Yan Diomande frá RB Leipzig.\n\nPSG hefur þegar tryggt sér verulegar tekjur með sölu Gonçalo Ramos til AC Milan og reiknar einnig með frekari innkomu vegna mögulegra brottfara Lee Kang-in og Randal Kolo Muani.",
  "title": "Setja skuggalegan verðmiða á manninn sem Liverpool og Arsenal vilja"
}