{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreig6dm2fc2fs2ias4c4s7a6zvkmprv62b27zxa7ratq7argqdckmza",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpirqlqcgpd2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreieth2rztl5xhre7lz2idy3pnrgg5hncum2i3wd2abeuc3rhng7zxa"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 5043934
  },
  "path": "/433/2026/06/29/real-madrid-opnar-a-thad-ad-selja-midjumanninn-sem-united-vill",
  "publishedAt": "2026-06-30T09:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Aurélien Tchouaméni gæti verið á leið frá Real Madrid í sumar ef marka má nýjustu fréttir frá Spáni.\n\nSamkvæmt _Sport_ verður sífellt líklegra innan herbúða spænska stórliðsins að franski landsliðsmaðurinn yfirgefi félagið áður en félagaskiptaglugganum lýkur. Hugmyndin um sölu hans á að hafa fengið aukið vægi á síðustu vikum.",
  "title": "Real Madrid opnar á það að selja miðjumanninn sem United vill"
}