{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreiawwk4iza2opdj3h7po5o4dnam6tnuv6vey4j5rorknxr7ukt3kv4",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mphjipwcpz62"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreiau5bqjgv5juxn5x47bamwmkct5fxpzyyupsvccsvintmluzse57a"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 241437
  },
  "path": "/433/2026/06/29/modgadir-eftir-tilbod-fra-chelsea",
  "publishedAt": "2026-06-29T20:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Sunderland hefur hafnað 8 milljóna punda tilboði Chelsea í fyrirliðann Granit Xhaka og gerir félagið það skýrt að svissneski landsliðsmaðurinn sé ekki til sölu.\n\nSamkvæmt Daily Mail kom áhugi Chelsea að frumkvæði nýs knattspyrnustjóra félagsins, Xabi Alonso, sem þekkir Xhaka vel frá samstarfi þeirra hjá Bayer Leverkusen.\n\nForráðamenn Sunderland eru hins vegar sagðir hafa litið á tilboðið sem móðgun. Félagið vill hvorki ræða frekari tilboð frá Chelsea né öðrum félögum og telur Xhaka lykilmann í framtíðaráformum sínum.",
  "title": "Móðgaðir eftir tilboð frá Chelsea"
}