{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreicetd3ksrkohnlaehnjrpfm6und5b6rrhwjp23qo6uiozmdj3lb7y",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mphjhpo33hp2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreibhlmljfgxash7zq5pncui3fqant2f5257w3c3qofmnzkzkzdqlt4"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 99579
},
"path": "/433/2026/06/29/liverpool-farid-i-adra-att-eftir-ad-diomande-valdi-psg",
"publishedAt": "2026-06-29T21:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Liverpool hefur sett Bradley Barcola, kantmann Paris Saint-Germain, ofarlega á lista yfir mögulega leikmenn ef félaginu tekst ekki að landa Yan Diomande í sumar.\n\nSamkvæmt enskum miðlum hefur Diomande verið helsta skotmark Liverpool á félagaskiptamarkaðnum, en RB Leipzig krefst hærri upphæðar en enska félagið er tilbúið að greiða. Liverpool var reiðubúið að bjóða um 86 milljónir punda, en það dugði ekki til.\n\nÁ sama tíma er PSG í viðræðum við Leipzig um kaup á Diomande, en leikmaðurinn er sagður vilja ganga til liðs við Frakklands- og Evrópumeistarana.",
"title": "Liverpool farið í aðra átt eftir að Diomande valdi PSG"
}