{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreic2bxroxhehqfaozvobfx46udzlpdjoyciafkwyso7qtssuasmiqu",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpghvvo62ly2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreifawayrscvmstmxvblen2sj7saxu356ldtatqyhn34qnzb73zsoki"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 182588
  },
  "path": "/433/2026/06/29/liverpool-beinir-sjonum-sinum-annad",
  "publishedAt": "2026-06-29T11:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Liverpool er þegar farið að horfa annað eftir að Yan Diomande, leikmaður RB Leipzig, valdi Paris Saint-Germain fram yfir enska félagið.\n\nSamkvæmt þýskum miðlum beinir félagið nú sjónum sínum að Said El Mala hjá Köln og gæti lagt fram formlegt tilboð á næstu dögum.\n\nEl Mala, sem er 19 ára gamall eins og Diomande, skoraði 13 mörk og gaf fimm stoðsendingar á síðustu leiktíð.\n\nHann er samningsbundinn Köln til ársins 2030 og hefur einnig verið orðaður við Tottenham og Newcastle.",
  "title": "Liverpool beinir sjónum sínum annað"
}