{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreifll7tfhsgnal5jyizifmtimozsqjdyrr52b6lehysse6rmuaf2ke",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mpb7y63hqu32"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreian6l4fyy3hocjxien7w226cr5pwcy3u33tcqerynvh5ox4qbjp6a"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 628238
},
"path": "/433/2026/06/26/inter-vill-kaupa-midvord-chelsea",
"publishedAt": "2026-06-27T10:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Trevoh Chalobah gæti verið á leið til Ítalíu í sumar ef marka má fréttir frá _Gazzetta dello Sport_.\n\nSamkvæmt miðlinum er Inter Mílanó að skoða enska miðvörðinn sem varakost ef félaginu tekst ekki að landa Oumar Solet frá Udinese.\n\nChalobah hefur verið orðaður frá Chelsea að undanförnu og vakti nýlega athygli þegar hann var kallaður inn í enska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið eftir að Tino Livramento meiddist og þurfti að draga sig úr keppni.",
"title": "Inter vill kaupa miðvörð Chelsea"
}